Verð nú bara að monnta mig aðeins á fóstursyninum honum Andra Má. Hann var að spila í gær í Gettu Betur þætti og tók sig svo vel út. Gaman að heyra hann loksins spila en hann hefur verið í þessari hljómsveit lengi. Endilega kíkja bara inn á
www.ruv.is vefsjónvarp og kíkja á guttann...hann er á trommunum.
Skilst að þeir kapparnir eigi að spila undir í söngleik sem FSU setur upp núna í vor. Það verður gaman fyrir þá.
Annars er bara 8 stiga hiti og rok og allur snjór farinn jibbí. Fær alltaf svona vorfíling þegar hitastigið hækkar svona.
En núna eru bara 6 vikur í lendingu hjá mér..samkvæmt sónar. Spennandi að vita hvort ég eigi fyrir tímann nú eða gangi "framyfir". Ég finn allavega að ég er orðin ansi þung á mér, eðlilega. En plúsinn er að það er ekki hásumar og maður að deyja úr hita. Svo ekki get ég kvartað yfir því. Hlakka bara til að fá krílið í hendurnar.
Við skruppum reyndar niður í Karstadt í DE núna á fimmtudaginn var sem er ekki frásögu færandi nema að ég var að fara að borga við einn kassann og fæ svona dúndur spark á mjög vondan stað svo ég kippist öll til, konan sem stóð við kassann fölnaði upp og hélt ábyggilega að ég væri bara að fara að fæða og spurði hvort allt væri í lagi..hahahaha æi mér fannst þetta ferlega fyndið. Hún var svo alvarleg greyið konan.
Skilst að konudagurinn sé í dag... njótið hans elskurnar og borðið mikið af bollum í dag og á morgun...enda eru þessir 3 dagar framundan Bolludagur, sprengidagur og öskudagur.
túrilú